28.3.2009 | 18:05
Vonandi er Davíð Oddsson ekki með Alzheimers sjúkdóm
Það er sorglegt þegar maður sem sjálfur hefur gengið í gegnum alvarleg veikindi, hefur aðra banvæna sjúkdóma í flimtingum , og óskar öðrum þess að fá þá. Er örvænting Sjálfstæðismanna virkilega slík að svona málflutningur eigi upp á pallborðið ?
Víkingar með Samfylkingu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég gekk af göflunum þegar ég las þetta en þú þekkir þennan sjúkdóm manna best Ólafur. Þetta var meira en ömurlegt þetta var viðbjóður
Finnur Bárðarson, 28.3.2009 kl. 18:36
Sammála. Að hann skuli óska þess að einhver hafi Alzheimer... Ætlum við aldrei að losna við þennan mann?
Kristín M. Jóhannsdóttir, 28.3.2009 kl. 18:45
Sælir. Mér finnst hann ganga of langt þegar hann segir að synjun Ólafs Ragnars Grímssonar á því að staðfesta fjölmiðlalögin, hafa verið „mesta pólitíska skemmdarverk“ seinni tíma á Íslandi. Þetta er bein árás á VG sem studdu útrásavíkingana í ræðu og riti á sínum tíma þanna sannleik hefði hann ekki átt að koma inn á þegar Davíð kemur inn á sukk VG og Baugs sem best er að gleyma. Eftir það hefðu útrásarvíkingarnir eignast allra frjálsa fjölmiðla með hjálp VG og nánast útilokað hefði verið að halda uppi nauðsynlegri gagnrýni á þá.
Hekla Sól Ásdóttir, 28.3.2009 kl. 18:49
Veikur er Davíð það allir nú vita
vitnar í Jesú og Alzheimer
hans orðljóta ræða var ömurleg skita
örvita sjúklings á sjálfum sér.
hafsteinn sigurbjörnsson (IP-tala skráð) 28.3.2009 kl. 22:13
Tek undir það að ég held að Davíð sé ekki með sjálfum sér, ég vinn við aðhlynningu Alzheimer- sjúklinga og veit ferlið hjá þeim sem greinast með Alzheimer. Davíð Oddsson á að skammast sín.
Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir, 28.3.2009 kl. 22:49
Davíð er bestur og flottastur og Guðbjörg skammast þú þín bara sjálf!!!!!!!!
Anna (IP-tala skráð) 28.3.2009 kl. 23:30
En Guðbjörg Elín er flott og Anna skammastu þín sjálf!
Guðmundur (IP-tala skráð) 28.3.2009 kl. 23:50
Þjóðnýðingur No 1:Davíð Oddsson.Eftir þessa svokölluðu ræðu hans fara atkvæðin að hrynja af Sjálftökuflokknum,og er það vel.
Númi (IP-tala skráð) 29.3.2009 kl. 01:09
Það hafa komið upp ýmiss nýyrði síðan bankarnir féllu: 2 þeirra eru Samspillingin og Sjálftökuflokkurinn.
EE elle (IP-tala skráð) 29.3.2009 kl. 01:21
Hver er þessi Anna? Þorir hún ekki að koma fram undir fullu nafni ? Aumingja Anna og Davíð Oddsson, svona fólki eins og Önnu, þið vitið henni Önnu ..., og Davíð er mikil vorkunn. Þetta er fólkið sem heldur að það sé eitthvað meira en aðrir. Anna komdu til dyranna eins og þú ert klædd, þá meina ég undir fullu nafni. Það eru bara gungur sem haga sér svona eins og þú og hafa eitthvað að fela ,að koma fram hér á blogginu EKKI undir fullu nafni. Davíð er flottur rithöfundur og vonandi vandar hann vel valið á pappírnum og orðavalið næst þegar hann þarf að tjá sig. Frekjan er svo mikil, að hann mætir á flokksþingið hjá sínum flokki og treður sér í pontu án þess að vera á mælendaskrá. Ég hef alla tíð haft miklar mætur á Davíð, en þarna á þessu þingi hans og ræðu sem gekk út á það að skíta út flokksbræður sína á ömurlegan hátt frammi fyrir alþjóð, fékk mig til að halda að Davíð sé orðinn verulega veikur. Og Anna mín verði þér að góðu og sömuleiðis.
Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir, 29.3.2009 kl. 09:19
Þakka komment hér að ofan. Vil enn og aftur minna fólk á að málefnaleg umræða er alltaf betri en persónuleg hnjóðsyrði. Eftir stendur að sú ósk Davíðs að einhverjir aðrir fái tiltekna sjúkdóma er afleit, og ekki bjóðandi sem hugsunarháttur hjá neinum stjórnmálamanni sem vill láta taka sig alvarlega.
Ólafur Þór Gunnarsson, 29.3.2009 kl. 10:27
Ætla að gera eins og þú Ólafur Þór, að vona að fólk hafi ekki í flimtingum banvæna sjúkdóma.
En það er í lagi að hafa í flimtingum aðra sjúkdóma sem læknanlegir eru, ss vinstri slagsíðuna sem þú og nokkrir aðrir í þjóðfélaginu eru haldnir, það gerði Davíð í ræðu sinni þó hann hafi einu sinni slegið undir belti.
Björn Jónsson, 29.3.2009 kl. 11:08
Þeir sem hér rita eiga það sameiginlegt að finnast eðlilegt og sjálfsagt að nýsettur embættismaður hefji feril sinn á því að ljúga að þjóðinni.
Segir heilmikið um kröfuna um opið og gegnsætt kerfi?
Ragnhildur Kolka, 29.3.2009 kl. 12:28
Hann var ekki að óska honum sjúkdóms, heldur notaði hann það sem samlíkingu. Og ekki gott að Seðlabankastjóri seigi ósatt.
haukur gunnarsson (IP-tala skráð) 29.3.2009 kl. 12:41
þið eruð bara öll vinsti menn, þorið bara ekki að viðurkenna að hann er pólitískur snillingur, ræðusnillingur og sá eini sem er búin að gera eitthvað rétt í þessum málum.
einhver (IP-tala skráð) 29.3.2009 kl. 13:37
innilega sammála þér númer 13, einnig gangast stefna vinstri flokka ekki neinum
einhver aftur (IP-tala skráð) 29.3.2009 kl. 13:39
Stundum er gott að lesa færslu til enda áður en maður kemur með athugasemdir: Þetta sagði Davíð orrétt: Annaðhvort er maðurinn með Alzheimer á alvarlegu stigi, eða hann sagði íslensku þjóðinni blygðunarlaust ósatt við fyrsta tækifæri [...] Við skulum vona að það sé Alzheimer-inn.
Finnur Bárðarson, 29.3.2009 kl. 14:04
Ég er ein af þeim sem skrifaði að ofan. Og mér finnst ekki eðlilegt og sjálfsagt að neinn embættismaður ljúgi að þjóðinni, no. 14.
EE elle (IP-tala skráð) 29.3.2009 kl. 14:27
Það er rangt Guðbjörg að fólk sem kemur ekki fram undir fullu nafni hafi eitthvað að fela. Þó fólk vilji ekki opinbera sig þarf það ekki að þegja. Það fólk hefur ekki ómerkilegri hluti að segja að þeir sem kjósa að koma fram undir fullu nafni.
JJ (IP-tala skráð) 29.3.2009 kl. 15:10
.......en þeir sem kjósa að koma fram undir fullu nafni.
JJ (IP-tala skráð) 29.3.2009 kl. 16:05
Það væri gott ef þjóðin hefði jafnafgerandi skoðanir á ríkisfjármálum og EB aðild eins og hún hefur á DO. Ekkert kveikir í bloggheimum líkt og DO. Eitt má DO eiga þegar hann opnar munninn hlustar þjóðin. Gefum honum nú frí.
Andri Geir Arinbjarnarson, 29.3.2009 kl. 17:41
Ath. semd no. 22 er ófær og finnst að Ólafi sé vel stætt á að eyða henni.
EE elle (IP-tala skráð) 29.3.2009 kl. 20:10
Ágætu bloggarar. Ég vil gjarnan að menn tjái sig hér, en án þess að vera með dylgjur um fólk. Færsla 22 sem var, hefur verið afmáð, en ég bíð eiganda hennar að koma með komment með skýrari málefnalegri áherslu.
Ólafur Þór Gunnarsson, 29.3.2009 kl. 20:33
Hvernig væri að EE talaði undri fullu nafni og rökstyddi hvers vegna hún finnst færsla mín ófær?
Andri Geir Arinbjarnarson, 30.3.2009 kl. 00:20
Andri, það var ALLS EKKI þín færsla, heldur næsta færsla á undan þinni, dónafærsla um fjölskyldu viss manns. Færslan var no. 22. Lestu hvað Ólafur Þór segir í færslu no. 24. Hann eyddi færslu no. 22 og þín, sem var áður no. 23, varð þar með no. 22. Færslan þín var fín. En ég óttaðist að úr þessu yrði misskilningur.
EE elle (IP-tala skráð) 30.3.2009 kl. 09:25
Takk fyrir, ég skil
Andri Geir Arinbjarnarson, 30.3.2009 kl. 09:32
Það er viljandi misskilningur að Davíð hafi "óskað" einhverjum Alzheimer´s, og alger óþarfi að fornemmast svona.
Hann vill meina að það sé skárra að vera haldinn sjúkdómi sem menn ráða ekki við, en að vera illa innrættur, lyginn og ómerkilegur.
Ef maðurinn er ekki haldinn Alzheimer er hann nefnilega hitt.
Um menn sem vísvitandi ljúga blákalt framan í alþjóð þegar þeir fá sitt fyrsta tækifæri til að kynna sig fyrir þjóðinni, er Alzheimer hrós.
Árni Árnason (IP-tala skráð) 30.3.2009 kl. 17:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.