Sérkennileg afstaða

Það er sérkennileg afstaða hjá Sjálfstæðismönnum að vilja ekki styðja breytingar á lögum sem þeir sjálfir settu, einkum þegar haft er í huga að breytingarnar eiga að tryggja að lögin virki.
mbl.is Sér ekki á svörtu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enron skólinn

Ef við viljum árangur í rannsókninni mun það kosta eitthvað, ef við sættum okkur við B vinnubrögð þá kostar það minna. Mín tilfinning hefur verið að flestum þyki nokkru skipta að hægt verði að koma lögum yfir þá menn sem settu okkur á hausinn.

Fréttirnar af þeim feðgum í dag benda til þess að ekki hafi allt verið með felldu, og að menn hafi gegið í sömu "skóla" og Enron drengirnir. Ef það er tilfellið , þá verður að vinna vel og með færu fólki til að ná til allra sem gætu átt sök. Það er hverrar krónu virði.


mbl.is Dapurlegar fréttir af Samson
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikilvægt skref í rétta átt

Þessi breyting á gjaldþrotalögunum er afar mikilvæg, og næstu daga verður vonandi klárað frumvarp um greiðsluaðlögun vegna húsnæðislána. Samþykkt þessara tveggja frumvarpa þýðir í raun að fólki verður hjálpað, og jafnvel afskrifaður hluti lána þeirra ef það er metið svo að það sé eina leiðin. Auðvitað hefði þetta mátt vera komið í gegn fyrir löngu, en munum að núverandi ríkisstjórn er ekki búin að vera við völd nema tvo mánuði. Svona lagabreytingar, auk hækkana á vaxtabótum um 25% mun koma mörgum til góða.
mbl.is Greiðsluaðlögun komin í gegnum þingið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki allt satt, gott og rétt

Það er gott að Geir skuli nú loksins vera í standi til að segja að ekki sé allt satt, gott og rétt sem Davíð Oddson segir. Mér hefði ekki þótt óeðlilegt að hann gagnrýndi fleiri ummæli Davíðs, en látum hann njóta vafans, kannski sagði hann það en var ritskoðaður eða klipptur til af blaðamanni.

Raunar er sorglegt að þessi ræða Davíðs skuli algerlega hafa yfirskyggt allar aðrar fréttir af fundi Sjálfstæðismanna. Þjóðin hefði þurft að heyra meira um einkavæðingaráform þeirra í heilbrigðiskerfinu svo eitthvað sé nefnt, niðurskurð í velferðarkerfinu já og "nýjar lausnir" í skólamálum. Fjölmiðlar hafa þá skyldu að segja frá því sem er efst á baugi í samfélaginu, og fyrir kosningar ættu þeir að einbeita sér að því sem flokkarnir stefna að eftir kosningar.


mbl.is Geir: Ómaklegt hjá Davíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonandi er Davíð Oddsson ekki með Alzheimers sjúkdóm

Það er sorglegt þegar maður sem sjálfur hefur gengið í gegnum alvarleg veikindi, hefur aðra banvæna sjúkdóma í flimtingum , og óskar öðrum þess að fá þá. Er örvænting Sjálfstæðismanna virkilega slík að svona málflutningur eigi upp á pallborðið ?

 


mbl.is Víkingar með Samfylkingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skattahækkanir í boði Sjálfstæðisflokksins.

Það var ekki við öðru að búast úr þessari átt. Flokkurinn sem hefur lagt íslenska hagkerfið í rúst, m.a. með óskynsamlegum skattalækkunum, þykist nú geta sagt sig frá ábyrgð með því að benda á VG sem skattahækkanaflokk. Hvernig ætla Sjálfstæðismenn að rétta við fjárlagahallann sem þeir bera ábyrgð á ? Með niðurskurði í velferðarkerfinu upp á 50 milljarða ?

Við skulum átta okkur á því að skattalækkanir áranna 2005-2007 erum við nú að greiða fyrir með vöxtum og verðbótum með skattahækkunum á næsta ári. Það er nefnilega að koma í ljós að það var engin innistæða fyrir þeim skattalækkunum sem Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn ákváðu. Við fáum þær ákvarðanir nú í hausinn, og Sjálfstæðismenn bera þar fulla ábyrgð.


mbl.is Skattmann er mættur aftur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Komum lögum yfir lögbrjóta og útrásarþjófa.

Svo segja menn að ekkert sé verið að gera til að ná tökum á liðinu sem stóð fyrir hruni Íslands. 200 milljónir og tugir starfsmanna með Evu Joly í liðinu hljóta að skipta einhverju máli. Vonandi bara ekki of seint. Pappírstætararnir og gagnaeyðingin hefur verið á fullu allt frá hruni, og vafalítið eru margir búnir að koma sínu í "skjól". Ef bara verður hægt að koma lögum yfir fólk, þó lítið innheimtist, er ég nokkuð viss um að þjóðinni liði betur.
mbl.is Joly sérstakur ráðgjafi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfbær atvinnustefna

Nokkuð hefur borið á því að undanförnu að menn hafi kallað eftir hugmyndum VG í atvinnumálum, og kvartað undan því að VG hafni hugmyndum um stóriðju sem lausn á atvinnuleysi. Hér eru nokkrar hugmyndir mínar þar um, og það mætti telja fleiri. 

 

  • Við getum notað rafmagnið okkar og aðra innlenda orkugjafa til að framleiða grænmeti, með slíku mætti skapa hundruð starfa á landsvísu, með mun minni tilkostnaði en stóriðju. Niðurgreitt rafmagn í þessu tilliti væru skynsamlegra en margt annað. Eins getum við gert með aðra orku til innlendrar matvælaframleiðslu.
  • Við getum flutt aftur inn í landið þá lyfja framleiðslu og vökvaframleiðslu sem hefur verið flutt héðan, og var ekki send úr landi vegna þess að hún bar sig ekki heldur vegna þess að ekki var nógu mikið á henni að græða. Aftur tugir starfa. (Í dag flytjum við inn um eða yfir 500 tonn af  vatni til að gefa í æð en fyrir 10 árum var öll þessi framleiðsla hér heima)
  • Við getum sett meiri áherslu á græna ferðaþjónustu, bæði með eflingu þjóðgarða og stækkun, og með markvissri vinnu með ferðaþjónustu aðilum. Ég tel að græn ferðaþjónusta muni á næstu árum skapa hundruðir starfa.
  • Með lækkun vaxta, lækkun verðbólgu og afnámi verðtryggingar búum við í haginn fyrir fjölskyldur og atvinnufyrirtæki til að hafa svigrúm til að skapa fleiri störf.
  • Með aukinni áherslu á vinnslu sjávarafla innanlands er hægt að halda í mörg störf, og skapa ný.
  • Með aukinni áherslu á heimaþjónustu og heimahjúkrun má skapa hundruðir starfa, með litlum tilkostnaði, og um leið sparast milljarðar í fjárfestingum í dýrum hjúkrunarrýmum. Það sem meira, er fólk fær þjónustu þangað sem það vill fá hana.
  • Með 100% endurgreiðslu virðisaukaskatts af viðhaldsframkvæmdum, sem nýlega var samþykkt á Alþingi, skapast mörg störf.

Þannig mætti lengi telja, en eins og sést eru víða tækifæri, við megum bara ekki láta drauminn um stóra "vinninginn" villa okkur sýn eða flækjast fyrir. Við verðum að láta af forsjárhyggjunni sem felst í því að koma með stóru patentlausnirnar. Við eigum að hlú að hugmyndum og tillögum með stuðningi við nýsköpun og leggja sérstaka áherslu á hugmyndir sem byggja á sjálfbærri þróun. Þrátt fyrir allt er ódýrara og auðveldara að skapa störf í litlum og meðalstórum fyrirtækjum heldur en að bíða eftir því að draumurinn um einhverja stórverksmiðju rætist.


Síðbúin afsökun, ef afsökun skildi kalla.

Það eru athyglisverðar vangaveltur hjá Geir Hilmari í setningaræðunni. Loksins virðist formaður Sjálfstæðisflokksins átta sig á að hann hafi borið ábyrgð, gert mistök, og það má jafnvel æsa sig upp í að halda að hann sjái eftir þeim. Mér finnst hann hafa verið full seinn að átta sig á þessu. Það er tæplega boðlegt að hafa verið í ríkisstjórn í 18 ár, og ekki áttað sig á fyrr en allt var komið í óefni að stefnan var röng. Og þegar hann áttaði sig í byrjun síðasta árs virðast fyrstu viðbrögð hafa verið heiftarleg afneitun. Svo mikil afneitun að menn horfðu á flæða undan bönkunum og þar með heimilunum í landinu án neinna beinna aðgerða, annarra en þeirra sem gerðu ástandið verra. Betra seint en aldrei.
mbl.is Mistök gerð við einkavæðingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hannes, fyrrverandi bankaráðsmaður, ráðleggur þjóðinni.

Í opnu Morgunblaðsins í dag er grein eftir fyrrverandi bankaráðsmann Seðlabankans. Þar talar hann af nokkrum þjósti um núverandi seðlabankastjóra, forsætisráðherra, og fleiri sem honum virðist vera í nöp við.

Hann getur þess í engu að ábyrgðin á því hruni sem íslenska bankakerfið hefur lent í sé hans sjálfs. Nefnir að vísu neðanmáls setu sína í ráðinu öll árin sem skuldasöfnun þjóðarinnar jókst mest og óveðursský hrönnuðust upp en lætur hjá líða að nefna að honum datt ekki í hug að vara við, hvað þá reyna að grípa í taumana. Nei miklu frekar má segja að hann hafi hvatt til frekari þenslu, minna eftirlits og hrópað á þá sem vöruðu við sem úrtölumenn. Nú þykist þessi fyrrverandi bankaráðsmaður þess umkominn að segja þeim til sem reyna að slökkva eldana sem hann tók sjálfur þátt í að kveikja.

Það er ljóst að núverandi stjórnvöld þurfa ekki að vænta gagnlegra tillagna frá helstu hugsuðum Sjálfstæðismanna í efnahagsmálum. Þrátt fyrir að þeirra eigin nefndir hafi sagt að stefnan hafi ekki brugðist heldur fólkið, þá senda þeir  í fremstu víglínu sama fólkið, með sömu hugmyndirnar. Það er þakkarvert að þeir skuli staðfesta með afgerandi hætti að úr þeirra ranni er einskis að vænta annars en stefnunnar sem leiddi okkur þangað sem við erum í dag. Vonandi halda forystumenn flokksins áfram að skrifa með þessum hætti, þjóðin veit þá hvað hún á að varast.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband