15.3.2009 | 16:50
Takk fyrir stuðninginn
Forvali VG í Kraganum lauk í gærkvöld og niðurstöður liggja fyrir. Sterkur listi, með góðri blöndu af ferskum nýjum frambjóðendum og reynsluboltum. Þessi listi verður öflugt vopn í þeirri kosningabaráttu sem framundan er. Um leið og ég þakka fyrir þann stuðning sem ég fékk vil ég þakka kjörstjórn forvalsins og öllum starfsmönnum sem að komu fyrir mikið og óeigingjarnt starf í þágu okkar allra sem tókum þátt. Næst er landsfundur (20.-22.3) og í kjölfarið hefst svo kosningabaráttan á fullu.
Athugasemdir
Þakka kveðjuna. Kjörstjórn í forvalinu ákveður endanlega röðun, en viðmiðunar reglan hefur verið að hver tvö sæti megi ekki vera skipuð einstaklingum af sama kyni. Þannig að í 1. og 2. séu karl-kona, eða kona-karl, í 3. - 4. séu karl-kona eða kona-karl o.s.frv. Því myndi Andrés færast niður fyrir Margréti ef reglan verður notuð. Listinn má semsagt vera karl kona kona karl, eða kona karl karl kona, eða karl kona karl kona o.s.frv.
Ólafur Þór Gunnarsson, 15.3.2009 kl. 18:39
Til hamingju með þetta Óli! Það var löngu tímabært að "Sárir og súrir fætur" fengju fulltrúa á þingi! :)
Sigurður Viktor Úlfarsson, 16.3.2009 kl. 01:04
Kæri bekkjarbróðir! Gratúlera þennan árangur, sannfærður að þú verðir eldri borgurum verðugur fulltrúi. Áfram Óli.
LÁ
lýður árnason (IP-tala skráð) 16.3.2009 kl. 03:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.