2.5.2009 | 13:19
Þjófar, ekki víkingar, ræningjabæli, ekki skjól.
Enn er verið að nota þessi alltof jákvæðu hugtök um þjófa, rán og ránsfeng. Köllum ekki þjófabæli skjól né þjófa víkinga. Notum frekar hefðbundin íslensk hugtök um þá óhæfu sem þarna hefur viðgengist og um þá menn sem þar hafa komið að.
![]() |
Rannsaka félög í skattaskjólum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Tja... það er nú strangt til tekið ekkert ólöglegt við að færa fjármuni til annarra landa til að nýta hagfelld skattkerfi.
Það má ekki alveg jafna saman skattaskipulagningu og skattsvikum.
Páll Jónsson, 2.5.2009 kl. 14:05
Já, en Páll, hvaða fjármuni þó? Landsins eða þeirra? Hafi það verið peningarnir þeirra kemur engum það við. Og hafi það verið skráð hjá Skattayfirvöldum hafa það vissulega ekki verið skattsvik. Pengingar hurfu úr ísl. bönkunum. EN, í minni bók er orðið Víkingur jafnljótt og jafnsjúkt og glæpamaður, þó fólk noti það sem e-ð ´cool´. Víkingar voru harðsvíraðir glæpamenn.
EE elle
. (IP-tala skráð) 2.5.2009 kl. 14:44
Þ.e. peningar.
EE elle
. (IP-tala skráð) 2.5.2009 kl. 14:46
Hafi menn raunverulega komið undan peningum sem átti að greiða af hér á landi er það þjófnaður eins og hver önnur skattsvik. Hafi menn komið undan illa fengnum peningum, þ.e. peningum sem þeir komust yfir t.d. m.þ.a. "stokka upp" verð á hlutabréfum, svipað og Enron menn gerðu, þá er það ekkert annað en þjófnaður.
Ólafur Þór Gunnarsson, 2.5.2009 kl. 18:04
Dagsatt hjá Ólafi.
EE elle
. (IP-tala skráð) 2.5.2009 kl. 19:11
Er nú ekki tími til kominn að þessir eftirlitsaðilar eins og RSK og SRS geri það sem þeim er ætlað? En af hverju eru þeir að vakna nú? Aðilar sem hafa hingað til skoðað "innskattsfrádrætti" hjá einyrkjum og potað í fimm þúsund kallana þar!
Þeir áttu að hafa eftirlit með þessum skattaundanskotum á meðan verið var að koma fjármunum í skattaskjól- að hreykja sér nú af því að fara eigi að gera eitthvað -sýnir auvitað máttleysið og kunningjasamfélagið hér á okkar litla landi - heldur einhver hugsandi maður að þetta útspil muni skila einhverju????
Já ekki hvarflar það að mér.
ghb (IP-tala skráð) 3.5.2009 kl. 02:23
Víkingar voru þjófar.
elísabet jökulsdóttir (IP-tala skráð) 3.5.2009 kl. 13:58
Án þess að ætla að fara í sparðatíning þá munu víkingar oftar en ekki hafa rænt þeim hlutum sem þeir komust yfir, en ekki stolið eins og þjófar að nóttu.
Ólafur Þór Gunnarsson, 3.5.2009 kl. 16:55
Bara til að forðast misskilning, skildi ég vel hvað Ólafur meinti að ofan, að kalla ætti þjófa þjófa en ekki víkinga. Og orðið víkingur hefur of vægan hljóm þegar það er notað um peningagróðaníðinga og þjófa, þó í minni bók þýði orðið víkingur glæpamaður.
EE elle
. (IP-tala skráð) 3.5.2009 kl. 19:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.